heidi
New Member
Posts: 9
|
Post by heidi on Sept 9, 2019 11:18:47 GMT
Hvaða einkenni eru þið með?
Ég byrjaði að finna ógleði fyrir rúmri viku sem versnaði hratt, ældi 1x í síðustu viku tek núna postafen á morgnanna til að komast fram úr rúminu en lagast uppúr hádegi og verð þá svöng og borða og borða fyrir milljón manns! Þoli mjög illa allskonar lykt. Fannst ógleðin ekki byrja fyrr en 6v síðast....
Smá þreytt og smá viðkvæm (ég á maístrák 2018 og hann datt og meiddi sig í fyrradag og ég grét meira en hann, hahaha).
Ég hef fundið rosa lítið í brjóstum bara nokkra stingi en ekkert of sárt en man að síðast var ég að drepast í brjóstunum og var það fyrsta einkennið þá.
|
|
|
Einkenni?
Sept 9, 2019 14:50:55 GMT
via mobile
Post by embryo on Sept 9, 2019 14:50:55 GMT
Einkennin hjá mér eru mjög svipuð og á seinustu meðgöngum. Svakalega aum brjóst og geirurnar eru að drepa mig, ég verð að sofa í topp. Ógleðin dettur inn inná milli en er ekki komin alveg, gerist við 6 vikurnar vanalega hjá mér. Svo er ég bara svakalega þreytt alltaf alla daga með svaðalega hormónabumbu! Geng um buxnalaus hérna heima því það er allt þröngt og óþægilegt en ég varð líka svona útblásin á seinstu meðgöngum og hef ekkert þyngst samt.
|
|
|
Post by ugla19 on Sept 9, 2019 17:59:50 GMT
Er ekki komin með nein einkenni ennþá, væri næstum til í að fara að finna fyrir einhverju, þetta er svo óraunverulegt þegar eina merkið er jákvætt próf. Verður gott að fara í snemmsónarinn í næstu viku og fá vonandi staðfest að eitthvað sé í gangi Hef einu sinni orðið ólétt áður, það var í sumar og þá missti ég svo ég er dálítið stressuð núna...
|
|
mylla
New Member
Posts: 3
|
Post by mylla on Sept 9, 2019 22:37:20 GMT
Helstu einkenni eru aum brjóst, má varla koma við þau. Frekar lítil ógleði enn sem komið er, bara svona smá vottur af ógleði ef ég verð svöng eða er nýbúin að borða. Er að finna núna aðeins fyrir þreytunni...
|
|
|
Post by töflutúss on Sept 10, 2019 9:10:49 GMT
Ég er að drepast í brjóstunum, sef endalaust og alltaf þreytt og er með ógleði allan daginn og öll kvöld -.-
|
|
|
Einkenni?
Sept 14, 2019 0:45:56 GMT
via mobile
Post by litlabaun on Sept 14, 2019 0:45:56 GMT
Ég er einmitt alveg ótrúlega aum i brjóstunum, alveg frá 3/4.viku , er mjög þreytt og verð alveg viðbjóðslega óglatt ef ég borða ekki reglulega
|
|