|
Post by noname on Sept 10, 2019 9:25:28 GMT
Hvenær ætlið þið að segja frá óléttunni? Þetta er fyrsta barnið mitt og mig langar svo að segja mömmu og pabba frá því (og tengdó og kannski systkinum). Er fólk almennt að bíða til 12 vikna?
|
|
|
Post by Admin on Sept 10, 2019 9:28:13 GMT
Tengdamamma mín fattaði þetta sjálf í síðustu viku og þá sagði ég mömmu frá líka Svo vita bestu vinkonur mínar þetta, en ég vinn með þeim svo það var erfitt að halda kjafti Annars ætla ég að segja eftir snemmsónarinn restinni af family, því að ég vil hafa eitthvað í höndunum annað en að ég pissaði á prik
|
|
|
Post by embryo on Sept 11, 2019 17:20:35 GMT
Eg ætla að biða frammyfir 12 vikna með að segja frá, kannski nokkrir nánir okkur sem fá fréttirnar eftir snemmsónar ef allt kemur vel út úr honum
|
|
heidi
New Member
Posts: 9
|
Post by heidi on Sept 11, 2019 21:18:29 GMT
Við ætlum að segja foreldrum eftir snemmsónar, förum á morgun! Er búin að segja 1 vinkonu annars vita bara ég og maðurinn minn. Rosa erfiðar tæpar þrjár vikur búnar án þess að segja frá haha
|
|
|
Post by rvk2020 on Sept 12, 2019 11:30:24 GMT
Ég er búin að segja systur minni og nánustu vinkonum. Ég því miður missti í Ágúst fóstur og hafði beðið með að segja það og sá þá svo hrikalega eftir því enda þarf maður allan stuðning frá nánustu þannig að núna ákvað ég bara að láta vita, enda mælti ljósan með því við mig. Ótrúlega gaman að segja svona góðar fréttir eftir missinn þó maður sé skíthræddur en spenntur í bland.
|
|
|
Post by litlabaun on Sept 14, 2019 0:47:30 GMT
Hef bara sagy systur minni og vinkonu, ásamt systur pabbans. En langar að segja mömmu einmitt sem fyrst en er líka hikandi við það
|
|