|
Post by Admin on Sept 12, 2019 11:38:40 GMT
Okeo stelpur, ég er alla daga með kvíðahnút í maganum yfir því að eitthvað komi fyrir :-( fann þetta aldrei á fyrri meðgöngu, en nuna vakna eg alla morgna, kiki hvort það se komið blóð og leyfi nér þannig séð ekki að hlakka til :-( Er lika skithrædd um að eitthvað gerist þvi að kærastinn minn er svo glaður og anægður og eg vil alls ekki að hann missi þa gleði (allt komið fra sjalfri mer, ekki honum) Er þetta eðlilegt? Og hvenær fer maður að slaka 😫
|
|
eoa21
New Member
Posts: 3
|
Post by eoa21 on Sept 12, 2019 12:15:01 GMT
Ég er í sama pakka, finn mikið fyrir kvíða þar sem þetta er fyrsta barn en önnur meðganga. Varðandi kærastann þá er ég viss um að hann styðji þig í hverju sem er! Ekki vera feimin að tala við hann og segja honum hvernig þér líður. Þeir vita það oft ekki og við þurfum svolítið að segja þeim til En ég er viss um að þegar þú ferð í snemmsónar og sérð að allt er í góðu þá þarftu ekki að hafa áhyggjur. En þetta er mikil breyting og skiljanlegt að vera með mismunandi tilfinningar. Þegar ég vakna þá fer ég strax á klósettið, sé að allt er í góðu, fæ mér vatnsglas því ég er með svo mikinn krampa og róa mig í huganum. Hver og ein meðganga er mismunandi og þessi hjá mér er allt öðruvísi en sú fyrri. Muna bara að vera róleg og anda Vona að þetta hjálpi!
|
|
|
Post by Admin on Sept 12, 2019 12:37:27 GMT
Ja, hann styður mig i hverju sem er, er bara að upplifa mig svo svakalega vanmattuga þessa dagana Takk fyrir þetta ❤️
|
|
|
Post by ugla19 on Sept 12, 2019 14:23:56 GMT
Tengi mikið við þetta, stutt síðan ég missti fóstur og er allt of meðvituð um að það geti gerst aftur Hef varla þorað að vera glöð yfir þessari þungun en er samt að reyna að hugsa um að líkurnar á því að hlutirnir gangi vel eru í rauninni mjög miklar... Trúi ekki öðru en að maður róist aðeins eftir snemmsónarinn ef allt kemur vel út þar <3
|
|
|
Post by embryo on Sept 12, 2019 14:30:59 GMT
Sama hér, maðurinn minn skilur mig samt rosa vel. Ég reyni samt bara að spá sem minnst útí þetta því það er lítið annað sem maður getur gert nema að taka vítamínin sín og hugsa vel um sig, ætli maður verði einmitt ekki rólegri eftir snemmsónarinn. Bara 11 dagar!
|
|
|
Post by Admin on Sept 12, 2019 19:26:08 GMT
Takk allar Minn kærasti skilur mig ótrúlega vel og gerir allt fyrir mig, en eg bara er svo mikill kvíðabolti að eg geri sjalfa mig geðveika með hugsununum En hlakka til þegar snemmsónarinn er búinn og eg vonandi róast, hlakka lika til þegar hopurinn fer a facebook og geta þa talað meira við ykkur sem skiljið og eruð að ganga i gegnum það sama
|
|
|
Post by rvk2020 on Sept 13, 2019 11:38:24 GMT
Ég er í sama pakka <3 því miður er lítið hægt að segja en að hlúðu vel að þér og reyndu að leyfa þér að hlakka til. Það er aðeins of stutt frá mínum missi svo ég er með endalausan kvíða, kíki á svona 3 klst fresti hvort það sé komið blóð og er hrædd leið og ég finn einhverja togverki. En það eru meiri líkur en minni að maður haldi og allt gangi vel og ég er að reyna fókusa á það en verandi með kvíða þá skil ég þig svo. Talaði við kærastann, sama hvað gerist þá eruð þið saman í þessu og kannski tengir hann ekki alveg eins og þú við þetta en það er ótrúlega gott að ræða saman um allt á meðgöngu, sérstaklega ef maður hefur einhverjar áhyggjur, það er svo gott ef traustið er gott. Gangi þér vel :* ég er viss um að maður verði aðeins rólegri eftir snemmsónarinn og svo enn rólegri eftir 12 vikna.
|
|